Stórfljót

Stórfljót er heimildarmynd um stutta ævi Elvu Bjargar Egilsdóttir.  Elva Björg var með SMA I og lést hún 2010.

Birgitta Engilberts gerði myndina og var hún lokaverkefni hennar í kvikmyndanámi.

Sem betur fer hafa á undanförnum árum komið fram byltingarkennd lyf sem hafa áhrif á framgang sjúkdómsins og bæta lífsgæði einstaklinga með SMA til muna. Áður fyrr voru lífslíkur einstaklinga með týpu 1, sem er alvarlegasta tegundin, takmarkaðar við fyrstu æviárin. Með nýjum lyfjameðferðum hafa horfur breyst til muna og lífslíkur lengst verulega, þó langtímaútkomur séu enn í þróun.